Nýjustu fréttir

Viðbrögðin hafa verið fín til þessa.  Magnea er búin að hóta að baka heila frystikistu áður en við mætum  (guð hjálpi okkur öllum)  og Gunnar er víst að athuga með einhvern sal í frystihúsinu ( milli flökunarvélar 3 og 5) þar sem mögulega væri hægt að hafa kaffi eða eitthvað.   Óstaðfestar fréttir herma að Guðmundur Larsen hinn eini sanni ætli að mæta og ætli sér að keyra vestur.  Við höfum í því tilefni haft samband við lögregluna á bæði Akureyri og á Egilsstöðum og munu þeir leiðbeina honum í rétta átt.  Hallgrímur Óli og Þura er orðnir bloggvinir okkar og ef einhverjir fleiri eru að blogga þá endilega gerast bloggvinir okkar.
Ef einhverjir luma á myndum eða jafnvel einhverjum skemmtilegum sögum þá endilega senda okkur á netfangið okkar larsenfamily@live.com  og við setjum það svo hér inn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þuríður Guðmundsdóttir

væri nú allveg til í ad komast í kökurnar hennar Magneu hef ekki fengid alminnilegar kökur í 8 mánudi eda sídan ég flutti af skólastígnum. En er viss um ad tad verda nóg af kökum fyrir 500 manns í kistunni tegar ættamotid verdur.Kvedja frá Grimsby

Þuríður Guðmundsdóttir, 22.2.2009 kl. 08:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband